Fotbolti.net
22.08.26 - 13:41
Brynjar Ingi Erluson

Liverpool lánar efnilegan miðvörð til Spánar (Staðfest)

Liverpool lánar efnilegan miðvörð til Spánar (Staðfest)
Canon

Mynd: Levante

Liverpool hefur lánað austurríska miðvörðinn Ifeanyi Ndukwe til spænska La Liga-félagsins Levante út tímabilið.
Ndukwe er 18 ára gamall og gekk til liðs við Liverpool frá Austria Vín í sumar.

Hann lék vel með Liverpool á undirbúningstímabilinu og fékk mikið lof fyrir frammistöðu sína. Félagið þurfti þó að lána hann út þar sem hann hafði ekki safnað nægilega mörgum punktum til að fá atvinnuleyfi á Englandi.

Varnarmaðurinn mun því leika með Levante á láni og freista þess að safna þeim punktum sem upp á vantar. Liverpool staðfesti lánssamninginn á heimasíðu sinni í dag.

Ndukwe er stór og sterkur miðvörður sem hefur verið fastamaður í yngri landsliðum Austurríkis.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.