22.09.15 - 18:51
Arnar Geir Halldórsson
Costa dæmdur í þriggja leikja bann (Staðfest)

Costa fer í bann, ekki Gabriel

Mynd: Getty Images

Costa fer í bann, ekki Gabriel

Mynd: Getty Images
Aganefnd enska knattspyrnusambandsins hefur dæmt Diego Costa, framherja Chelsea, í þriggja leikja bann vegna framkomu kappans í leik gegn Arsenal um síðustu helgi.
Costa sló Laurent Koscielny, varnarmann Arsenal, í andlitið en atvikið fór framhjá Mike Dean, dómara leiksins.
Spænski framherjinn neitaði sök í málinu en hefur nú verið dæmdur í leikbann.
Costa var mikið í sviðsljósinu í leiknum en hann fiskaði rautt spjald á Gabriel síðar í leiknum.
Því rauða spjaldi var áfrýjað og var staðfest fyrr í dag að Gabriel fer ekki í leikbann vegna spjaldsins.
Costa mun missa af leikjum Chelsea gegn Southampton, Newcastle og Aston Villa.