Fotbolti.net
21.09.26 - 22:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Atletico skaut föstum skotum á Mourinho

Atletico skaut föstum skotum á Mourinho
Canon

Mynd: EPA

Það hefur skapast mikil dramatík eftir grannaslag Atletico og Real Madrid um helgina.

Leiknum lauk með 2-1 sigri Atletico en Jose Mourinho, stjóri Real Madrid, mætti með útprentaða mynd á fréttamanna fund eftir leikinn af tveimur brotum úr fyrri hálfleik þar sem hann vildi rauð spjöld á andstæðingana.
Ósáttur Mourinho prentaði út myndir og mætti með á fréttamannafund
TENGT EFNI

Ósáttur Mourinho prentaði út myndir og mætti með á fréttamannafund

Atletico Madrid hefur svarað þessu athæfi Mourinho á samfélagsmiðlum þar sem félagið byrti myndband af útprentuðu blaði sem á stóð „stöðvum áreitni dómara núna."

Félagið tjáði sig einnig á kaldhæðnislegan hátt við spænska miðilinn Marca.

„Við vorum að hugsa um að prenta út öll mistökin sem hafa verið Real Madrid í hag en við myndum eyða öllum skógum, við getum það ekki af sjálfbærniástæðum," er haft eftir félaginu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.