21.09.26 - 21:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Gerum allt sem við getum til að tryggja að hann verði áfram hjá okkur"

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Aron Snær Ingason, leikmaður Þrottar, hefur verið sterklega orðaður við Val síðustu mánuði og heyrast sögur um að hann sé þegar búinn að semja við Val um að spila með liðinu á næsta tímabili.
Aron er lykilmaður hjá Þrótti, skoraði sigurmarkið gegn Fylki í úrslitum Lengjudeildarumspilsins og var í liði ársins hér á Fótbolta.net. Hann skoraði ellefu deildarmörk í sumar og svo sigumarkið gegn Fylki.

TENGT EFNI
Segir Aron Snæ á leið í Val
Fótbolti.net ræddi við Kristján Kristjánsson sem er formaður fótboltadeildar Þróttar um Aron Snæ.
„Við gerum það sem við getum til að halda honum í Þrótti, Þróttur er rétti staðurinn fyrir hann og besti staðurinn fyrir hann. Við gerum allt sem við getum til að tryggja að hann verði áfram hjá okkur. Hann er gríðarlega mikilvægur leikmaður fyrir okkur og leikmaður sem við viljum alls ekki msisa. Hann hefur oft sagt við okkur að hann vilji spila með Þrótti í efstu deild og nú er tækifæri til að standa við þau orð," segir Kristján.