„Við vitum að þessir leikur eru mikilvægir. Við unnum vel í kvöld þrátt fyrir að frammistaðan hafi ekki verið sú besta. Mikilvægast var að fá þrjú stig," sagði Gareth Bale eftir 3-0 sigur Tottenahm á LASK í Evrópudeildinni.
Bale var að byrja sinn fyrsta leik fyrir Tottenham síðan hann sneri aftur eftir langa veru hjá Real Madrid á Spáni. Bale var ekki alltaf sá vinsælasti í Madrid.
„Það er frábært að vera kominn til baka. Þú vlt vera elskaður og vel metinn. Þú vilt gefa allt í þessari treyju."
„Þetta er flottur hópur með mikla breidd sem vonandi hjálpar okkur að gera vel. Það er alltaf gott að hafa samkeppni til að halda þér á tánum," sagði Bale að lokum.
Turning up for your first Spurs TV post-match interview like... 🤣#UEL ⚪️ #COYS pic.twitter.com/0l3nlnrhgm
— Tottenham Hotspur (@SpursOfficial) October 22, 2020
Athugasemdir