Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fim 22. október 2020 22:08
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gerrard: Besta mark sem ég hef séð með berum augum
Mynd: Getty Images
„Þetta mark var augnablikssnilld," sagði Steven Gerrard, stjóri Rangers, þegar hann var spurður út í stórbrotið mark Kemar Roofe.

„Ég hef spilað fótbolta sem atvinnumaður síðan 1998 og þetta er besta mark sem ég hef séð með berum augum."

„Hann fékk boltann fimmtán jördum fyrir framan teiginn okkar, hann gerir vel í tveimur návígum, heldur leikmanni svo frá sér og tekur þann leikmann á í verstu aðstæðum sem ég hef séð."

„Að hafa þessa yfirsýn, þennan kraft og gæðin til að skora af 55 jarda færi, ég held ég hafi ekki séð betra mark og ég held að ég muni ekki sjá það í framtíðinni,"
sagði Gerrard.

Rangers vann leikinn gegn Standard Liege 0-2 og setti Roofe met með markinu. Enginn hefur skorað af lengra færi í sögu Evrópudeildarinanr.
Athugasemdir
banner
banner