Fotbolti.net
22.10.26 - 10:00
Elvar Geir Magnússon

Lesendur spá KA falli á laugardaginn

Lesendur spá KA falli á laugardaginn
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Lokaumferð Bestu deildarinnar fer fram á laugardag þar sem Akureyrarliðin Þór og KA berjast um að halda sæti sínu í deildinni.

Þór situr í tíunda sæti deildarinnar með eins stigs forskot á KA fyrir lokaumferðina. Þórsarar sækja FH heim í Kaplakrika á meðan KA tekur á móti föllnum Eyjamönnum.

Þórsarar eru með örlögin í sínum eigin höndum og ljóst að þeir halda sæti sínu með því að vinna í Krikanum. Samkvæmt könnun á forsíðu telja lesendur líklegra að KA falli en Þór.
Innkastið - Yrði dýrasta liðið til að falla
TENGT EFNI

Innkastið - Yrði dýrasta liðið til að falla


Veðbankar telja þó líklegast að það verði Þór sem fari niður. FH er sigurstanglegra í leiknum gegn Þór og KA miklu sigurstranglegra í leiknum gegn ÍBV.

laugardagur 24. október
14:00 FH-Þór (Kaplakrikavöllur)
14:00 KA-ÍBV (Greifavöllurinn)

Besta karla - Neðri hluti

#LiðLmunStig
1Valur26-234
2Stjarnan26-1431
3FH26-630
4Þór26-3127
5KA26-1326
6ÍBV26-1422
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.