Fotbolti.net
22.10.26 - 08:00
Elvar Geir Magnússon

Howe líklegastur til að verða næsti stjóri Man Utd

Eddie Howe. Næsti stjóri Man Utd?

Eddie Howe. Næsti stjóri Man Utd?

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Sæti Michael Carrick hitnaði enn frekar eftir skellinn í Como, Chelsea hefur áhuga á miðjumanni Brighton, leikmaður Aston Villa er eftirsóttur og Arsenal horfir til þess að selja Gyökeres. Þetta og fleira í slúðurpakkanum.
62% lesenda Manchester Evening News telja að Michael Carrick sé kominn á endastöð hjá Manchester United og ætti að vera rekinn. (MEN)

Blaðamaðurinn Alan Nixon segir að Eddie Howe, fyrrum stjóri Newcastle, sé tilbúinn að taka við á Old Trafford. Howe er í veðbönkum talinn líklegastur sem næsti stjóri Man Utd ef Carrick verður rekinn. Antonio Conte, Julian Nagelsmann og Fabian Hurzeler fylgja þar á eftir. (Football365)

Manchester United er eitt af þeim félögum sem sýna hollenska miðverðinum Ruud Nijstad (18) hjá Twente, áhuga. (Athletic)

Chelsea hefur bæst í hóp þeirra félaga sem hafa áhuga á sænska miðjumanninum Yasin Ayari (23) hjá Brighton. Galatasaray vill einnig fá hann. (Teamtalk)

Liverpool er ekki að flýta sér að hefja samningaviðræður við argentínska miðjumanninn Alexis Mac Allister (27) þrátt fyrir að hann hafi sýnt mun betri frammistöðu á þessu tímabili. (Telegraph)

Barcelona og Real Madrid eru meðal þeirra félaga sem fylgjast grannt með svissneska miðjumanninum Johan Manzambi (21) eftir góða byrjun hans hjá Aston Villa. (Football Insider)

Sunderland undirbýr nýtt tilboð í Geny Catamo (25), kantmann Sporting og Mósambík, fyrir félagaskiptagluggann í janúar. (Teamtalk)

Everton fylgist með króatíska framherjnum Dion Beljo (24) hjá Dinamo Zagreb í Króatíu. Everton skoðar möguleika fyrir janúargluggann. (Football Insider)

Liverpool, ásamt nokkrum öðrum stórliðum í Evrópu, hefur áhuga á að fá til sín mexíkóska miðjumanninn Gilberto Mora (18) frá Tijuana. (Marca)

Arsenal vill fá til baka þær 55 milljónir punda sem félagið greiddi fyrir sænska framherjann Viktor Gyökeres en líklegra þykir að hann verði seldur í lok tímabilsins frekar en í janúar. (Football Insider)

Brasilíski sóknarmaðurinn Vinicius Jr (26) var mjög nálægt því að ganga til liðs við Arsenal í sumar en vonast nú til að verja afganginum af ferli sínum hjá Real Madrid. (Mail)

Arsenal er fremst í flokki enskra úrvalsdeildarfélaga í baráttunni um að fá til sín tyrkneska miðjumanninn Can Uzun (20) hjá Eintracht Frankfurt. (The Daily Briefing)
Ruud Nijstad.

Ruud Nijstad.

Canon

Mynd: EPA

Johan Manzambi.

Johan Manzambi.

Canon

Mynd: EPA

Gilberto Mora.

Gilberto Mora.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.