22.10.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Man Utd fylgist með hollenskum varnarmanni

Ruud Nijstad í leik með Twente

Mynd: EPA

Ruud Nijstad í leik með Twente

Mynd: EPA
Manchester United fylgist náið með hinum 18 ára gamla Ruud Nijstad, sem leikur með Twente í Hollandi.
Nijstad er afar efnilegur miðvörður sem hefur vakið athygli margra stórliða í Evrópu með frammistöðu sinni.
Samkvæmt Athletic hefur United mikinn áhuga á Nijstad, sem er metinn á um níu milljónir punda.
Barcelona og Bayern München eru einnig sögð fylgjast grannt með varnarmanninum, sem er örvfættur og þykir eiga bjarta framtíð fyrir sér.
Á þessu tímabili hefur hann spilað 14 leiki og skoraði eitt mark, en hann er fastamaður í U19 ára landsliði Hollands og var þá í U21 árs landsliðinu í fyrsta sinn fyrr í þessum mánuði en sat allan tímann á bekknum.