Fotbolti.net
22.10.26 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson

Van Dijk: Ég átti slæman dag á skrifstofunni

Van Dijk: Ég átti slæman dag á skrifstofunni
Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool, viðurkenndi að hafa átt slæman dag á skrifstofunni í 4-3 sigrinum gegn Villarreal í Meistaradeildinni á þriðjudag.
Einkunnir úr Meistaradeildinni: Foden og Ngumoha í sérflokki - Van Dijk ólíkur sjálfum sér
TENGT EFNI

Einkunnir úr Meistaradeildinni: Foden og Ngumoha í sérflokki - Van Dijk ólíkur sjálfum sér

Van Dijk gerði mikil mistök í fyrsta marki Villarreal þegar hann ætlaði að skalla boltann til baka á Alisson. Boltinn fór hins vegar beint fyrir fætur Georges Mikautadze sem renndi honum undir brasilíska markvörðinn og í netið.

„Ég var eiginlega að bíða eftir því að þið mynduð spyrja mig út í mína eigin frammistöðu, en þetta var hræðileg byrjun. Það er oft talað um að það sé á brattann að sækja og fyrir varnarmann er sérstaklega erfitt að koma til baka eftir svona mistök.“

„Ég reyndi auðvitað mitt besta, en persónulega var þetta bara slæmur dagur á skrifstofunni. Við erum hins vegar ellefu saman í þessu og þurftum að snúa leiknum við. Það var það sem skipti mestu máli.“

„Því miður gerast svona hlutir í fótboltanum og sem betur fer hefur þetta ekki gerst oft á mínum ferli. Ég var einfaldlega ekki upp á mitt besta í þessum leik, en við unnum og það er það sem skiptir máli. Þetta snýst ekki um mig heldur liðið í heild sinni. Við unnum leikinn og náðum í þrjú stig,“
sagði Van Dijk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.