Fotbolti.net
21.10.26 - 23:46
Brynjar Ingi Erluson

Segja Man Utd hafa sett sig í samband við Nagelsmann

Julian Nagelsmann

Julian Nagelsmann

Canon

Mynd: EPA

Manchester United er þegar farið að svipast um eftir nýjum stjóra en þetta herma heimildir talkSPORT.
Carrick svarar Bruno: Ef þú ert ekki tilbúinn að hlaupa ertu ekki að fara að vinna fótboltaleiki
TENGT EFNI

Carrick svarar Bruno: Ef þú ert ekki tilbúinn að hlaupa ertu ekki að fara að vinna fótboltaleiki

Michael Carrick situr í afar heitu sæti hjá Manchester United eftir 4-1 tap liðsins gegn Como í Meistaradeildinni í kvöld.

United hefur ekki unnið í síðustu sjö leikjum og andrúmsloftið hjá félaginu er orðið afar spennuþrungið.

Lisandro Martínez gagnrýndi stjórn félagsins eftir 2-0 tapið gegn Atlético og Amad Diallo birti dularfull skilaboð á Snapchat. Margir leikmenn eru sagðir ósáttir við stöðu mála og tapið í kvöld hefur aðeins gert ástandið verra.

Bruno Fernandes, fyrirliði United, steig síðan fram í viðtali og gagnrýndi leikskipulag Carrick, sem svaraði honum fullum hálsi á fréttamannafundi og sagði að leikmenn þyrftu að vera tilbúnir að hlaupa til að vinna fótboltaleiki.

Það virðist nú nánast óumflýjanlegt að Carrick verði látinn taka pokann sinn og gæti það jafnvel gerst fyrir leikinn gegn Bournemouth um helgina.

talkSPORT segist hafa heimildir fyrir því að United hafi sett sig í samband við þýska þjálfarann Julian Nagelsmann, sem lét af störfum hjá þýska landsliðinu eftir HM í sumar.

Nagelsmann er þó ekki eini maðurinn sem kemur til greina, en Antonio Conte hefur einnig verið orðaður við starfið.

Þá er United sagt hafa mikið álit á Fabian Hürzeler, stjóra Brighton. Það verður þó að teljast ólíklegt að hann yfirgefi félagið á þessum tímapunkti, enda hefur Brighton farið á kostum á tímabilinu og situr í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Carrick hefur líklega stýrt sínum síðasta leik með United

Carrick hefur líklega stýrt sínum síðasta leik með United

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.