Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 22. nóvember 2019 11:49
Elvar Geir Magnússon
Sonur Gheorghe Hagi mætir á Laugardalsvöll
Icelandair
Ianis Hagi.
Ianis Hagi.
Mynd: Getty Images
Gheorghe Hagi er besti fótboltamaður í sögu Rúmeníu.
Gheorghe Hagi er besti fótboltamaður í sögu Rúmeníu.
Mynd: Getty Images
Í morgun varð það ljóst að Ísland mun mæta Rúmeníu í undanúrslitum umspilsins fyrir EM 2020.

Einn helsti leikmaður Rúmena er hinn 21 árs Ianis Hagi en gríðarlegar vonir eru bundnar við hann. Ekki síst þar sem hann hefur ekki langt að sækja hæfileika sína.

Gheorghe Hagi faðir hans var á sínum tíma einn allra besti sóknarmiðjumaður Evrópu og lék fyrir Barcelona og Real Madrid. Þá varð hann fjórum sinnum Tyrklandsmeistari með Galatasaray.

Ianis er að mörgu leyti líkur föður sínum hvað varðar leikstíl og kom hann nafni sínu rækilega í umræðuna með frábærri frammistöðu með U21 landsliði Rúmena á síðasta ári.

Ianis hefur nú leikið 10 A-landsleiki fyrir Rúmeníu.

Hann spilaði með Viitorul Constanta í heimalandinu en pabbi hans á félagið og er knattspyrnustjóri þess. Félög í stærstu deildum Evrópu sýndu honum áhuga en hann ákvað að rökrétt næsta skref væri að ganga í raðir Genk í Belgíu.

Hann hafnaði stærri tilboðum til að fara til Genk þar sem hann taldi það besta kostinn til að halda áfram framþróun sinni í fótboltanum. Hann hefur lært af reynslunni en árið 2016 fór hann til Fiorentina á Ítalíu en það skrif kom aðeins of snemma fyrir hann.

Í hlaðvarpsþætti BBC sem fjallar um Evrópufótboltann var Ianis Hagi til umfjöllunar á síðasta ári, þegar hann var að skapa sér nafn.

„Hann er framúrskarandi leikmaður. Það er hægt að bera hann saman við Antonio Cassano eða Paul Gascoigne. Það eru alltaf að verða færri og færri svona leikmenn," sagði Steve Crossman, íþróttafréttamaður á BBC.

„Það eru miklir hæfileikar í þessum strák. Hann er jafnvígur á báðar fætur og tekur hornspyrnur frá hægri og vinstri. Hann hefur skorað beint úr hornspyrnum. Þetta er leikmaður sem spennandi verður að fylgjast með á komandi árum."


Athugasemdir
banner
banner