Spænski kantmaðurinn Marco Asensio hefur skorað 52 mörk í 250 keppnisleikjum með Real Madrid.
Hann skoraði 12 mörk í 42 leikjum á síðustu leiktíð og er kominn með 3 mörk í 15 leikjum á þessu tímabili en samningur hans við Real Madrid rennur út næsta sumar.
Asensio hefur verið orðaður við ýmis félög og meðal annars erkifjendurna í Barcelona.
„Barcelona var aldrei möguleiki. Mér líður vel hjá Real Madrid en það er aldrei að vita hvað gerist í framtíðinni," sagði Asensio, sem er með spænska landsliðshópnum á HM, í gær.
„Hvað sem er sagt þá er það ekki satt að ég íhugaði félagsskipti til Barca á nokkrum tímapunkti."
Það virðist ólíklegt að Asensio semji við Real Madrid en ýmis stórlið innan og utan Spánar hafa áhuga á að krækja í leikmanninn.
Athugasemdir