Fotbolti.net
22.11.26 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson

Í fyrsta sinn frá aldamótum sem Leeds sigrar á Brúnni

Í fyrsta sinn frá aldamótum sem Leeds sigrar á Brúnni
Canon

Mynd: EPA

Chelsea fékk rækilegan skell þegar liðið tók á móti Leeds United í ensku úrvalsdeildinni í gær og urðu lokatölur 1-4.
England: Átján ára leikmaður Tottenham fór á kostum - Chelsea fékk skell á heimavelli
TENGT EFNI

England: Átján ára leikmaður Tottenham fór á kostum - Chelsea fékk skell á heimavelli

Þetta er sögulegur sigur fyrir Leeds sem hafði ekki unnið fótboltaleik á Stamford Bridge frá árinu 1999.

„Ég held að flestir leikmennirnir í hópnum hafi ekki verið fæddir þegar við unnum síðast fótboltaleik á Stamford Bridge," sagði Daniel Farke stjóri Leeds eftir sigurinn.

„Undirbúningurinn fyrir leikinn snérist um hápressu og að koma í veg fyrir að heimsklassa leikmenn Chelsea fengu nægan tíma á boltanum. Við spiluðum ótrúlega vel og leyfðum andstæðingunum okkar ekki að njóta sín.

„Fyrri hálfleikurinn var kaflaskiptur en ég myndi segja að við höfum gjörsamlega átt seinni hálfleikinn. Við verðskulduðum þennan sigur."


Farke hrósaði einnig Noah Okafor að leikslokum eftir að Svisslendingurinn skoraði tvennu í sigrinum. Leeds er í sjötta sæti úrvalsdeildarinnar með 17 stig eftir 11 umferðir, einu stigi fyrir ofan Chelsea.
Í fyrsta sinn frá aldamótum sem Leeds sigrar á Brúnni
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton10+1922
3Man City11+822
4Liverpool10+418
5Bournemouth11+418
6Leeds11+517
7Everton10+216
8Chelsea11016
9Tottenham11+115
10Brentford10+514
11Aston Villa11-314
12Newcastle11-313
13Coventry11-812
14Hull City10011
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd10-58
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.