Fotbolti.net
22.12.14 - 06:00
Alexander Freyr Tamimi

Ally McCoist hættur sem þjálfari Rangers (Staðfest)

Ally McCoist er hættur með Rangers.

Ally McCoist er hættur með Rangers.

Canon

Mynd: Getty Images

Ally McCoist hefur yfirgefið stöðu sína sem þjálfari skoska stórliðsins Rangers og mun hann því ekki vinna út uppsagnarfrest sinn.

McCoist sagði starfi sínu lausu í síðustu viku eftir 2-0 tap gegn Queen of the South, en upphaflega stóð þó til að hann myndi vinna út 12 mánaða uppsagnarfrest.

Eftir 2-0 sigur gegn Livingston var þó ljóst að hann myndi hætta, þó hann fái borgað út uppsagnarfrestinn.
Aðstoðarmaður hans, Kenny McDowall, hefur verið ráðinn þjálfari út tímabilið, en Rangers stefnir á að komast aftur upp í skosku úrvalsdeildina.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.