Fotbolti.net
23.01.15 - 09:30
Daníel Freyr Jónsson

Chelsea lánar Chalobah og Marin (Staðfest)

Nathaniel Chalobah er farinn til Reading.

Nathaniel Chalobah er farinn til Reading.

Canon

Mynd: Getty Images

Meistaraefnin í Chelsea hafa lánað hinn tvítuga Nathaniel Chalobah til Reading í Championship-deildinni út leiktíðina.
Chalobah er tvítugur að aldri og er í miklum metum hjá forráðamönnum Chelsea. Hann mun núna spila undir stjórn Steve Clarke, sem var aðstoðarstjóri Jose Mourinho á árum áður.

Chalobah spilar sem djúpur miðjumaður, en getur einnig leyst stöðu miðvarðar. Reading situr í 18. sæti í Championship-deildinni og er sex stigum frá fallsæti.

Þá hefur Chelsea lánað vængmanninn Marko Marin til Anderlecht í Belgíu en þessi 25 ára leikmaður var á láni hjá Fiorentina fyrri hluta tímabilsins.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.