Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 23. janúar 2021 08:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Olivia frá Princeton til Aftureldingar (Staðfest)
Mynd: Princeton University
Afturelding hefur samið við kanadíska varnarmanninn Olivia Sheppard. Olivia getur einnig leyst stöðu miðjumanns.

Olivia verður 23 ára gömul þann 29. janúar næstkomandi. Hún lék við góðan orðstír með sterku háskólaliði Princeton og þá á Olivia leiki með u-20 ára landsliði Kanada.

Þetta er fyrsti atvinnumannasamningur Olivia og mun hún leika með Aftureldingu á komandi leiktíð.

„Við bjóðum Oliviu velkomna til félagsins og hlökkum til að sjá hana á vellinum í sumar," segir í tilkynningu Aftureldingar.


Mynd: Princeton
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner