Fotbolti.net
23.02.15 - 21:07
Ívan Guðjón Baldursson

Sonur Sir Alex látinn fara frá Peterborough (Staðfest)

Sonur Sir Alex látinn fara frá Peterborough (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Darren Ferguson, sonur hins goðsagnakennda Sir Alex Ferguson, hefur sagt upp störfum hjá Peterborough sem leikur í C-deildinni á Englandi.

Liðið er aðeins búið að vinna þrjá leiki frá áramótum og var 3-0 tap gegn MK Dons á laugardaginn síðasta stráið.
,,Það gerir mig leiðan að tilkynna að félagið hefur ákveðið að slíta samstarfi við einn sigursælasta þjálfara félagsins frá upphafi,\" sagði Darragh MacAnthony, eigandi félagsins.

,,Ég spjallaði við Darren og erum við sammála um að bæði hann og félagið þurfi nýja áskorun.

,,Við höfum átt rúm 8 ótrúleg ár saman og ég efast ekki um að honum muni ganga vel á næsta áfangastað.

,,Gary Breen, Gavin Strachan, Jimmy Walker, Stewart England og Marc Lindsey yfirgefa félagið með Darren.\"

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.