Fotbolti.net
23.02.15 - 20:30
Ívan Guðjón Baldursson

Thorgan Hazard seldur til Þýskalands (Staðfest)

Thorgan Hazard seldur til Þýskalands (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Chelsea er búið að selja Thorgan Hazard, yngri bróður Eden Hazard, til þýska félagsins Borussia Mönchengladbach.

Gladbach hefur verið meðal efstu liða þýsku deildarinnar undanfarin ár og er í þriðja sæti deildarinnar eftir 22 umferðir.
Hazard er 21 árs gamall og er búinn að skrifa undir samning við þýska félagið sem gildir til 2020.

,,Thorgan hefur sýnt okkur hvers hann er megnugur, við erum í skýjunum,\" sagði Max Eberl, yfirmaður íþróttamála hjá Gladbach.

Hazard er búinn að koma við sögu í 29 leikjum fyrir Gladbach á tímabilinu, þar sem hann er búinn að skora 4 mörk og leggja 6 upp.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.