Cristano Ronaldo var eins og svo oft áður á skotskónum í gær þegar Juventus heimsótti botnlið Spal, Ítalíumeistararnir sigruðu 1-2.
Ekki nóg með það að Ronaldo skoraði í leiknum heldur náði hann einum nokkuð merkilegum áfanga, hann spilaði sinn 1000 keppnisleik á ferlinum í gær.
Þessi magnaði Portúgali hefur eins og flestir vita spilað fyrir Sporting í heimalandinu, Manchester United, Real Madrid og nú Juventus á ferli sínum.
Ronaldo jafnaði einnig met í leiknum í gær þegar hann skoraði í ellefta deildarleiknum sínum í röð.
Þessi 35 ára gamli Portúgali er búinn að skora 21 mark í deildinni á tímabilinu.
11 - Only 3 players have scored at least a goal in 11 league apps in a row in the Serie A history (considering the same Serie A campaign):
-- OptaPaolo (@OptaPaolo) February 22, 2020
Gabriel Omar Batistuta in 1994/95
Fabio Quagliarella in 2018/19
Cristiano #Ronaldo in 2019/20
Triumvirate.#SPALJuve pic.twitter.com/UW5CWGCMzl
Athugasemdir