Fotbolti.net
23.02.20 - 19:05
Ívan Guðjón Baldursson

Þýskaland: Auðvelt fyrir Wolfsburg gegn Mainz

Þýskaland: Auðvelt fyrir Wolfsburg gegn Mainz
Canon

Mynd: Getty Images

<b>Wolfsburg 4 - 0 Mainz</b>
1-0 Josip Brekalo ('21 )
2-0 Renato Steffen ('45 )
3-0 Yannick Gerhardt ('49 )
4-0 Renato Steffen ('68 )
Wolfsburg vann sinn annan leik í röð í þýsku deildinni og er aðeins tveimur stigum frá Evrópusæti.

Mainz kíkti í heimsókn í dag og lentu heimamenn ekki í miklum erfiðleikum enda færanýting þeirra frábær.

Josip Brekalo og Renato Steffen skoruðu í fyrri hálfleik. Yannick Gerhardt gerði þriðja markið í upphafi síðari hálfleiks og innsiglaði Steffen sigurinn með fjórða markinu á 68. mínútu.

Brekalo gerði fyrsta mark leiksins með flottu langskoti og var fjórða markið einstaklega laglegt, þar sem Steffen lék lystir sínar innanum varnarmenn Mainz í vítateignum áður en hann skoraði.

Mainz er tveimur stigum fyrir ofan fallsvæðið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.