Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 23. febrúar 2021 10:16
Elvar Geir Magnússon
Thiago Silva ekki með Chelsea í kvöld
Thiago Silva er enn á meiðslalistanum.
Thiago Silva er enn á meiðslalistanum.
Mynd: Getty Images
Atletico Madrid og Chelsea mætast í kvöld klukkan 20:00 í fyrri viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Vegna heimsfaraldursins fer leikurinn fram á hlutlausum velli í Búkarest, höfuðborg Rúmeníu.

Varnarmaðurinn reynslumikli Thiago Silva er enn meiddur í læri og verður ekki með í kvöld. Hann hefur misst af þremur síðustu úrvalsdeildarleikjum vegna meiðsla sinna.

Kai Havertz og Christian Pulisic hafa hinsvegar jafnað sig af meiðslum sínum og eru leikfærir fyrir kvöldið.

Það vantar ýmsa leikmenn í Atletico Madrid liðið. Þar á meðal eru Jose Gimenez, Sime Vrsaljko og Yannick Carrasco sem eru meiddir. Hector Herrera greindist nýlega með Covid-19 og Kieran Trippier er enn í banni eftir að hafa brotið veðmálareglur.

En Atletico er með öflugan hóp, enda á toppi spænsku deildarinnar, og má fastlega gera ráð fyrir því að Luis Suarez og Joao Felix verði meðal byrjunarliðsmanna í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner