Man City gerir tilboð í Olmo - Barcelona reynir líka að fá spænska landsliðsmanninn - Wan-Bissaka vill ekki fara til West Ham
   fös 23. febrúar 2024 09:00
Hafliði Breiðfjörð
Kveðjupistill Vöndu - 'Munaði hársbreidd að FIFA tæki yfir starfsemi KSÍ'
Vanda og Klara Bjartmarz framkvæmdastjóri munu báðar hætta hjá KSÍ núna í febrúar.
Vanda og Klara Bjartmarz framkvæmdastjóri munu báðar hætta hjá KSÍ núna í febrúar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vanda á leik með U15 kvenna í Portúgal í nóvember.
Vanda á leik með U15 kvenna í Portúgal í nóvember.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vanda í stúkunni.
Vanda í stúkunni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vanda Sigurgeirsdóttir hættir sem formaður KSÍ á ársþingi sambandsins á morgun þegar eftirmaður hennar verður kosinn. Hún ritar ávarp formanns í árskýrslu sambandsins sem var birt í gær en þar segir hún að það hafi munað hársbreidd að FIFA tæki yfir starfsemi KSÍ í kjölfar þess að Guðni Bergsson forveri hennar neyddist til að segja af sér.

Lesa ávarp formanns á vef KSÍ

Hér að neðan er gripið í þann hluta pistils Vöndu þar sem hún gerir upp tíma sinn sem formaður sambandsins en pistilinn má lesa í heild sinni í hlekknum að ofan.

„Haustið 2021 tók við að mestu ný stjórn og ég sem nýr formaður. Verkefnið var ærið, við tókum við í mesta ólgusjó í sögu KSÍ. Við þurftum ekki aðeins að fást við málefni fótboltans, eins og stjórnir á undan okkur höfðu gert, heldur tókumst við einnig á við aðstæður sem ollu því að aðeins munaði hársbreidd að FIFA tæki yfir starfsemi KSÍ. Fundir voru því margir og langir, við, ásamt starfsfólki KSÍ vorum vakin og sofin yfir verkefninu - sem fólst meðal annars í að bæta öryggi allra, búa til verkferla, koma á fræðslu, setja gerð nýrra siðareglna í gang, fara í samstarf með Barnaheillum og í leiðinni að koma okkur út úr storminum. Þetta hefur tekist með gríðarlegri vinnu og fyrir þetta ber að þakka. Mig langar því að þakka af öllu mínu hjarta því fólki sem gaf kost á sér í stjórn, þegar enginn annar gerði það, þakka starfsfólki KSÍ fyrir þeirra ómetanlegu störf í þessu krefjandi verkefni og þakka núverandi stjórn fyrir afar farsælt samstarf gegnum þessa öldudali og yfir í nokkuð lygnan sjó.

Nú er komið að kveðjustund hjá mér. Ég verð alltaf stolt af þessum tæpu tveimur og hálfu ári sem ég var formaður KSÍ. Við skrifuðum söguna saman, ég og félögin í landinu sem treystu mér fyrir verkefninu. Við vorum fyrst af löndunum 55 innan UEFA til að velja konu sem formann. Minn mesti heiður. Ég vil þakka fyrir það traust sem mér hefur verið sýnt og þakka öllum þeim sem ég hef hitt og unnið með, bæði innan stjórnar og í félögunum víðs vegar um landið.

Mig langar sérstaklega að minnast á starfsfólk og þjálfara KSÍ. Þau tóku mér opnum örmum, hafa stutt mig með ráðum og dáð og sýnt mér tryggð, virðingu og traust. Ég hef ekki hitt annan eins starfsmannahóp, sem af óendanlegum dugnaði, metnaði og ósérhlífni gengur í öll verk, fótboltanum á Íslandi til heilla. Með mér út um dyrnar gengur Klara Bjartmarz, framkvæmdarstjóri KSÍ, sem í janúar átti 30 ára starfsafmæli. Knattspyrnuhreyfingin á henni mikið að þakka, meira en ég held að flestir geri sér grein fyrir.

Ég hef reynt að nálgast viðfangsefnið af auðmýkt og fagmennsku, starfað af heiðarleika og gert mitt besta til að stuðla að framgangi íslenskrar knattspyrnu. Ég geng nú glöð út í sumarið, með góðar minningar í farteskinu, reynslu sem mun vafalaust nýtast mér vel, ævilanga vináttu við fullt af fólki og þakklæti og stolt í hjarta.

Takk fyrir mig <3

Athugasemdir
banner
banner
banner