Fotbolti.net
23.02.26 - 21:27
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Jói útherji

Benfica kvartaði undan Valverde - UEFA refsar honum ekki

Benfica kvartaði undan Valverde - UEFA refsar honum ekki
Canon

Mynd: EPA

Það hefur verið mikil dramatík í kringum viðureign Real Madrid og Benfica í Meistaradeildinni. Gianluca Prestianni, leikmaður Benfica, mun ekki spila seinni leikinn sem fram fer á miðvikudaginn á meðan UEFA heldur áfram rannsókn á kynþáttafordómum sem eiga hafa beinst að Vinicius Junior.
Prestianni settur í bráðabirgðabann og spilar ekki gegn Real
TENGT EFNI

Prestianni settur í bráðabirgðabann og spilar ekki gegn Real

Prestianni gæti fengið allt að tíu leikja bann verði hann fundinn sekur.

Federico Valverde kýldi Samuel Dahl, miðjumann Benfica, í fyrri leiknum en slapp við áminningu. Benfica sendi kvörtun til UEFA en sambandið mun ekki refsa Valverde og hann verður því til taks í seinni leiknum.

Fyrri leiknum í Benfica lauk með 1-0 sigri Real Madrid. Vinicius skoraði eina markið en í kjölfarið átti sér stað atvikið umtalaða þar sem Prestianni setti treyjuna fyrir munninn á sér og Vinicius sakaði hann um að segja einhver ófögur orð við sig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.