Francois Letexier, dómari leiks Benfica og Real Madrid, hafði nóg á sinni könnu í leik liðanna í kvöld. Í upphafi seinni hálfleiks stöðvaði hann leik eftir að hafa fengið þau skilaboð frá Vinicius Jr að hann hefði orðið fyrir rasísku aðkasti frá Gianluca Prestianni leikmanni Benfica. Réttá undan hafði VInicius skorað það sem reyndist eina mark leiksins og fagnað með ögrandi dansi við hornfánann sem pirraði heimamenn. Kylian Mbappe, samherji Vini, sagði eftir leikinn að Prestianni hefði kallað Vini apa fimm sinnum. Prestianni setti treyjuna yfir munninn þegar hann lét ummælin falla og Vini brást við með því að fara til dómarans sem stöðvaði leikinn.
Í seinni hálfleiknum vildu heimamenn sjá tvö rauð spjöld á loft fyrir brot leikmanna Real Madrid. Annars vegar á Vinicius og hins vegar á Federico Valverde. Rætt var um atvikið og svo dómarann í Meistaradeildarmörkunum á . Ríkharð Óskar Guðnason stýrði þættinum og landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson og Albert Brynjar Ingason voru sérfræðingar.
Í seinni hálfleiknum vildu heimamenn sjá tvö rauð spjöld á loft fyrir brot leikmanna Real Madrid. Annars vegar á Vinicius og hins vegar á Federico Valverde. Rætt var um atvikið og svo dómarann í Meistaradeildarmörkunum á . Ríkharð Óskar Guðnason stýrði þættinum og landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson og Albert Brynjar Ingason voru sérfræðingar.
Hrósar Vinicius
„Það er ógeðslega þreytandi að sjá svona í íþróttum í dag. Eins sorglegt og er að segja það þá held ég að hann sé orðinn svolítið vanur þessu," sagði Albert.
„Vini lendir oft í þessu á Spáni, árið er 2026. Vonandi fær Prestianni viðeigandi refsingu. Ég verð að hrósa Vini Jr. fyrir hvernig hann tæklaði þetta atvik, þetta hefði getað orðið 'disaster' en hann bara þagði niður í þessum vitleysingum sem voru að angra hann í leiknum. Hann gaf þeim enga rödd, var flottur," sagði Arnar.
Tvö rauð á Real?
Benfica fékk aukaspyrnu rétt fyrir utan teig, og var Vinicius brotlegur þegar Richard Rios var að hlaða í skot. Jose Mourinho, stjóri Benfica, trylltist og fékk að líta tvö gul spjöld fyrir mótmæli. Hann vildi sjá Vinicus fá sitt annað gula spjald.
„Dómarar eru mannlegir, fyrir mér er þetta gult spjald. Dómarinn hugsar örugglega til fyrri atvika. En Mourinho var ekki alveg að hafa það, og hefur eitthvað til síns máls. Gamli Mourinho kom fram og fær tvö gul spjöld. Þetta atvik sem gerðist fyrr í leiknum hafði klárlega áhrif á dómarann. Í svona skotstöðu er þetta bara gult spjald," sagði Arnar. Albert var ekki alveg sammála, fannst brotið ekkert endilega verðskulda seinna gula spjaldið. Þetta atvik átti sér stað á 84. mínútu.
Albert bjóst hins vegar við rauða spjaldinu þegar Valverde braut af sér skömmu áður geng Samuel Dahl, vinstri bakverði Benfica.
„Þetta virkar ekki mikið í fyrstu sýn, en mér finnst hann bara smetta'nn með hægri. Dahl á að gera meira úr þessu og Otamendi (fyrirliði Benfica) á að koma og gera allt brjálað. Setja alvöru þrýsting á dómarann" sagði Albert.
„Það er óskiljanlegt að VAR hafi ekki gripið þarna inn í og gefið Valverde beint rautt spjald. Ég skil hvað þú ert að fara Albert, en þeir eiga ekki að þurfa a setja pressu þegar það er VAR," sagði Arnar og hélt áfram:
„Ég held, eðlilega, að Real hafi fengið slaka út af þessu atviki sem gerðist og sluppu mögulega við tvær brottvísanir."
Athugasemdir



