Fótbolti.net ræddi við Aron Sigurðarson sem skoraði tvennu fyrir KR í öruggum sigri gegn ÍBV í Eyjum í dag.
Lestu um leikinn: ÍBV 2 - 6 KR
„Þetta var flott frammistaða, fyrri hálfleikur sérstaklega. Erum hugrakkir, spilum með tóman haus og axlirnar niðri. Byrjum seinni hálfleikinn vel og skorum tvö mörk og þá er leikurinn dauður. Samt þurfum við ekki að fá þessi mörk á okkur," sagði Aron.
„Við skorum fjórða markið í uppbótatíma fyrri hálfleiks, þá er þetta dautt en ef við horfum á síðasta tímabil þá spiluðum við oft frábæra fyrri hálfleika og svo slökum við á í seinni hálfleik. Mér finnst lærdómur í því. Ég ætla ekki að fara kvarta undan þessu, þetta er fínt. 6-2 á erfiðum útivelli, flott frammistaða."
Aron var spurður að því hvort liðið stefndi á titilinn.
„Það er bara næsti leikur, það er ekki hægt að gera neitt annað. Við erum að fara spila aftur eftir fjóra daga, það eru sjö leikir í maí. Það eru frábær lið í þessari deild. Það eru þrjár umferðir búnar, endalaust af stigum í pottinum. Bara njóta þess að spila fótbolta óttalausir, tóman haus, með axlirnar niðri og vera betri sem lið og þá gerast góðir hlutir."






















