Þór 1 - 0 Fram
1-0 Sebastian Heimvik Haugland ('49)
1-0 Sebastian Heimvik Haugland ('49)
Lestu um leikinn: Þór 1 - 0 Fram
Nýliðar Þór tóku á móti Fram í Bestu deild karla í dag og fengu gestirnir frá Úlfarsárdal besta færið í fyrri hálfleik þegar Atli Þór Jónasson átti skalla framhjá úr mjög góðu færi.
Staðan var þó markalaus í leikhlé og byrjaði Vuk Oskar Dimitrijevic seinni hálfleikinn á að skjóta boltanum rétt yfir, skömmu áður en Sebastian Haugland tók forystuna fyrir heimamenn. Boltinn barst til Sebastian sem lét vaða við vítateigslínuna og skoraði með stórglæsilegu skoti.
Framarar voru við stjórn í síðari hálfleik en tókst ekki að skapa mikla hættu fyrr en á lokakaflanum. Aron Birkir Stefánsson gerði mjög vel að verja nokkrum sinnum frá gestunum til að halda markinu hreinu.
Hann varði meistaralega frá Fred og Sigurjóni Rúnarssyni til að tryggja dýrmæt stig. Lokatölur 1-0.
Þór er með sex stig eftir þrjár fyrstu umferðir tímabilsins en þetta var fyrsti tapleikur Fram, sem situr eftir með fjögur stig.


