Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
   fim 23. apríl 2026 12:14
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Byrjunarlið ÍBV og KR: Óskar stýrir ÍBV - Sá yngsti byrjar
Bara sex á bekknum hjá KR
Alexander Rafn
Alexander Rafn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Óskar Zoega.
Óskar Zoega.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
3. umferð Bestu deildarinnar á sumardaginn fyrsta hefst eftir tæpan klukkutíma þegar ÍBV fær KR í heimsókn.

Lestu um leikinn: ÍBV 0 -  4 KR

Arnar Breki Gunnarsson, Arnór Ingi Kristinsson, Vicente Valor og Pisco koma inn í lið ÍBV frá 2-1 tapi gegn Val í síðustu umferð. Alex Freyr Hilmarsson, Milan Jezdemirovic, Róbert Elís Hlynsson og Filip Stuparevic detta út. Alex Freyr og Róbert eru ekki í hópnum en Alex Freyr fór af velli vegna meiðsla gegn Val. Róbert er lánsmaður frá KR.

Aleksandar Linta tekur út leikbann eftir að hafa fengið rautt spjald gegn Val. Óskar Elías Zoega Óskarsson er þjálfari ÍBV í dag.

Það er ein breyting á liði KR sem vann Þór 5-2 í síðustu umferð. Stefán Árni Geirsson sest á bekkinn og Alexander Rafn Pálmason (2010) kemur inn. Alexander varð árið 2024 sá yngsti í sögu efstu dieldar til að spila í deildinni. Það vekur athygli að það eru aðeins sex af níu mögulegum varamönnum á bekknum hjá KR.

Byrjunarlið ÍBV:
1. Marcel Zapytowski (m)
2. Sigurður Arnar Magnússon (f)
4. Mattias Edeland
6. Milan Tomic
8. Bjarki Björn Gunnarsson
10. Viggó Valgeirsson
14. Arnar Breki Gunnarsson
23. Arnór Ingi Kristinsson
26. Felix Örn Friðriksson
30. Vicente Valor
42. Pisco

Byrjunarlið KR:
12. Halldór Snær Georgsson (m)
7. Finnur Tómas Pálmason
9. Eiður Gauti Sæbjörnsson
11. Aron Sigurðarson (f)
14. Alexander Rafn Pálmason
17. Luke Rae
19. Amin Cosic
21. Gabríel Hrannar Eyjólfsson
22. Ástbjörn Þórðarson
23. Arnór Ingvi Traustason
26. Hrafn Tómasson
Slapp
banner
banner
banner