Fotbolti.net
23.04.26 - 20:47
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Fyrsta markið fyrir Þór var sérstakt - „Hef skorað mörk hægri vinstri í Noregi"

Auglýsing
Smellhitti boltann þegar hann skoraði fyrsta markið fyrir Þór.

Smellhitti boltann þegar hann skoraði fyrsta markið fyrir Þór.

Canon

Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net

„Sem framherji hef ég alltaf skorað mörk en þetta var sérstakt mark. Venjulega eru þetta föst skot niðri í hornin úr teignum, ekki skot fyrir utan teig. Það mikilvægasta var samt sigurinn. Við sýndum mikinn karakter, við erum ungt lið, með marga unga leikmenn og ungir leikmenn sem koma inn. Ég er mjög ánægður með liðið í dag og þetta voru þrjú mikilvæg stig," segir Sebastian Haugland, framherji Þórs, sem skoraði sigurmarkið á nýja VÍS vellinum gegn Fram í dag.

Markið var hans fyrsta fyrir Þór en norski framherjinn var keyptur frá Hödd í Noregi í síðasta mánuði.
Siggi Höskulds eftir stóran dag: Ein flottasta varsla sem ég hef séð
TENGT EFNI

Siggi Höskulds eftir stóran dag: Ein flottasta varsla sem ég hef séð

Framarar lágu á Þórsurum eftir markið hjá Haugland en gestirnir náðu ekki að skora.

„Fyrstu vikurnar hjá Þór hafa verið mjög góðar, hópurinn er mjög góður. Mér líður eins og þetta sé orðið heima þrátt fyrir að ég hafi bara verið hér í 3-4 vikur. Strákarnir hafa hjálpað mér, tekið mér eins og einum af hópnum. Þetta var góður dagur í dag, svona mark og þrjú stig."

„Ég veit að ég skora mörk, ég hef skorað mörk hægri vinstri heima í Noregi svo ég veit að ég skora alltaf. En þú ert alltaf á höttunum eftir þínu fyrsta og það er smá léttir að skora það. En ef ég skora ekki þá erum við með aðra sem skora, Ingimar (Arnar Kristjánsson) hefur verið mjög góður á tímabilinu líka. Við erum vel mannaðir frammi."


Hrósar Mjölnismönnum í hástert
Hvernig var að upplifa stemninguna á þessum fyrsta heimaleik liðsins?

„Það var mjög gaman, þeir settu standardinn mjög hátt með stuðningnum á móti Val og KR úti. Núna sáum við hvernig þetta getur verið á heimavelli líka. Þetta gefur okkur svo mikla orku, þetta er ótrúlegt. Ég held að við séum ekki með svona stuðningsmannakúltúr heima í Noregi, kannski hjá sumum félögum, en þetta er eitthvað sérstakt," segir Haugland.

'Ég held að við séum ekki með svona stuðningsmannakúltúr heima í Noregi, kannski hjá sumum félögum, en þetta er eitthvað sérstakt'

'Ég held að við séum ekki með svona stuðningsmannakúltúr heima í Noregi, kannski hjá sumum félögum, en þetta er eitthvað sérstakt'

Canon

Mynd: Toggipop

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.