Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
   fim 23. apríl 2026 10:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hin hliðin - Freyja Stefánsdóttir (Víkingur)
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Emmu nógu fyndin til að fá boð í mat.
Emmu nógu fyndin til að fá boð í mat.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bergdís sömuleiðis fyndin með eindæmum.
Bergdís sömuleiðis fyndin með eindæmum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Velkomin í Víkina.
Velkomin í Víkina.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Óþolandi.
Óþolandi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arna Sif er erfið viðureignar.
Arna Sif er erfið viðureignar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bergþóra ekkert eðlilega skemmtileg.
Bergþóra ekkert eðlilega skemmtileg.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Freyja Stefánsdóttir er á leið í sitt fjórða tímabil í meistaraflokki þrátt fyrir ungan aldur. Hún er uppalin hjá Víkingi og kom við sögu í 19 leikjum í Bestu deildinni í fyrra.

Hún er sóknarsinnaður leikmaður sem á að baki 32 leiki fyrir yngri landsliðin og hefur í þeim skorað fimm mörk. Hún var í stóru hlutverki með U19 landsliðinu sem tryggði sér sæti á EM fyrr í þessum mánuði. Í dag sýnir hún á sér hina hliðina.

Fullt nafn: Freyja Stefánsdóttir

Gælunafn: Ekki með neitt

Aldur: 18

Hjúskaparstaða: Lausu

Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnisstætt úr leiknum: Ökklabrotnaði í fyrsta meistaraflokksleiknum mínum í des 2021 og þurfti að láta þjálfarann halda á mér útaf

Uppáhalds drykkur: Bleikur Collab

Uppáhalds matsölustaður: Bombay Bazaar klikkar aldrei

Uppáhalds tölvuleikur: Hef betra með tímann minn að gera en að spila tölvuleiki

Áttu hlutabréf eða rafmynt: Nei

Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Despo

Uppáhalds tónlistarmaður: Aron Can og JJ

Uppáhalds hlaðvarp: Er ekki mikil hlaðvarps kona

Uppáhalds samfélagsmiðill: Instagram

Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: .net

Fyndnasti Íslendingurinn: Patrekur Jaime

Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: Sund í kvöld?

Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: ekkert sem mér dettur í hug

Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Helvíti erfitt að skora á móti Örnu Sif

Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Ekki hægt að velja bara einn, hef átt marga frábæra

Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Katla í FH

Hver var fyrirmyndin þín í­ æsku: Neymar

Sætasti sigurinn: Bikarmeistaratitilinn 23'

Mestu vonbrigðin: Að vera meidd stóran part af tímabilinu í fyrra

Uppáhalds lið í enska: Arsenal

Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Tæki stemningskonuna Hrafnhildi Sölku

Efnilegasti fótboltamaður/kona landsins: Anika Jónsdóttir

Fallegasti fótboltamaðurinn á Íslandi: Amin Cosic

Fallegasta fótboltakonan á Íslandi: Helena Ósk, heppnir þið strákar að hún sé á lausu

Besti fótboltamaðurinn frá upphafi: Ronaldo

Ein regla í fótbolta sem þú myndir breyta: Ef þú skýtur í stöninga eða slána útaf færðu hornspyrnu

Uppáhalds staður á Íslandi: Heima er best

Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Þegar ég tryggði okkur sigurinn í bikarleiknum 2023 með fyrstu snertingunni minni.

Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: Ekkert svoleiðis

Fyrir utan fótbolta, fylgist þú með öðrum íþróttum: Er núna mikið að fylgjast með körfunni og svo alltaf pílan yfir jólin

Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Phantom

Í hverju varstu/ertu lélegastur í­ skóla: Saga er hundleiðinleg og erfið

Vandræðalegasta augnablik: Ég fæ alltof oft blóðnasir í leikjum, á helmingnum af fóltboltamyndunum af mér er ég með pappír í nefinu

Hvaða þremur leikmönnum byðir þú í mat og af hverju: Myndi bjóða Bergdísi, Emmu og Gígju, gæti hlegið endalaust með þeim, eintóm stemning.

Bestur/best í klefanum og af hverju: Bergdís og Emma eru fáránlega fyndnar.

Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: Myndi senda Bergdísi í Masterchef, ekkert eðlilega góð í eldhúsinu.

Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Bíðið bara þangað til þið heyrið mig syngja Froðan með Ragga Bjarna.

Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Begga Sól, hélt hún væri frekar boring en hún er ekkert eðlilega skemmtileg.

Hverju laugstu síðast: Lýg ALLTOF oft

Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Löng upphitun

Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Myndi biðja Neymar um mynd.

Einhver skilaboð til stuðningsmanna fyrir sumarið: Fyllum stúkuna í sumar!!!
Slapp
banner
banner