Sigurður Arnar Magnússon varnarmaður ÍBV er vanur því að vera hreinskilinn og það var hann svo sannarlega eftir 6-2 skellinn sem Eyjamenn fengu gegn KR í dag.
Hann segir að liðið þurfi að laga hugarfarið og að margir leikmenn hefðu ekki haft áhuga á að leggja lóð á vogarskálarnir í varnarleiknum.
Hann segir að liðið þurfi að laga hugarfarið og að margir leikmenn hefðu ekki haft áhuga á að leggja lóð á vogarskálarnir í varnarleiknum.
Lestu um leikinn: ÍBV 2 - 6 KR
„Fyrri hálfleikur var ekki boðlegur. Við vitum alveg að við erum að spila við gott lið, erum að spila við KR-inga sem eru sjóðandi heitir. En það skiptir ekki máli. Það er sama hvaða lið mætir ef við sýnum þessu svona lítinn áhuga. Þá verður bara valtað yfir okkur," segir Sigurður sem bar fyrirliðabandið í dag.
„Í dag voru of margir sem höfðu ekki áhuga á að verjast. Við erum eiginlega heppnir að vera bara 0-4 undir í hálfleik, það var bara eitt lið á vellinum."
„Það voru miklu fleiri en einn sem sýndu ekki áhuga á að taka þátt í varnarleiknum. Þá líta allir illa út. Við þurfum að horfa í spegil og velta því fyrir okkur hvernig við komum til baka úr þessu. Þetta var mjög vont. Við töpum hverjum einasta leik ef við mætum eins og við mættum í fyrri hálfleik."























