Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
Hundóánægður með hugarfar Eyjamanna - „Margir höfðu ekki áhuga á að verjast“
Þurfa að endurmeta undirbúninginn - „Getum ekki boðið fólki upp á þetta"
Aron Sig: Þá er þetta dautt
Óskar Hrafn: Vona að það styttist í að menn haldi einbeitingu í 90 mínútur
Haraldur Freyr um völlinn: Hefur bara hellings áhrif
Stefan Ljubicic: Bara teipað og tvær til þrjár verkjatöflur
Óli ekki með miklar áhyggjur af bitleysi Blika - „Eigum eftir að laga þetta“
Stubbur: Jú jú, það var eitthvað að gera
Haddi: Fer ánægður með stigið norður
Lárus Orri: Hann hlýtur að vera í liði umferðarinnar
Davíð Smári: Gaman að byrja þetta með alvöru hvelli
Venni: Honum líður vel og er ekki að fara neitt
Mæta pressulausar inn í tímabilið - „Höfum trú á verkefninu“
„Vorum ekkert sérlega ánægðar með það“
„Vissi að pressan kæmi þegar ég tók við sem þjálfari Breiðabliks“
Myndir: Grétar heppinn að fá ekki rautt?
„Okkur var líka spáð falli í fyrra og við afsönnuðum það“
Efstur á óskalista leikmanna - „Þakklátur og smá meyr“
Linda Líf: Það trylltist allt
Glódís: Ótrúlega stolt að spila fyrir Ísland
   fim 23. apríl 2026 15:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Óskar Hrafn: Vona að það styttist í að menn haldi einbeitingu í 90 mínútur
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
KR er á toppi Bestu deildarinnar með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir. Liðið vann öruggan sigur á ÍBV í Eyjum í dag. Fótbolti.net ræddi við Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfara KR, eftir leikinn.

„Ég er sáttur af langstærstum hluta með frammistöðu liðsins. Mér fannst við vera frábærir sóknarlega, við komum aðeins höktandi inn í seinni hálfleik en við náðum að keyra þetta upp," sagði Óskar Hrafn.

Lestu um leikinn: ÍBV 2 -  6 KR

KR komst í 6-0 en Viggó Valgeirsson skoraði fyrra mark ÍBV eftir mistök hjá Halldóri Snæ Georgssyni, markverði KR.

„Ég get lifað með því að markmaðurinn minn sé að reyna að opna Eyjamenn með sendingu og það miistekst, það er það sem við stöndum fyrir og hefði jafnvel viljað að Dóri væri búinn að gefa fleiri svona sendingar," sagði Óskar Hrafn.

„Það er alveg hægt að vera pirraður yfir mörkunum sem við fáum á okkur, auðvitað væri maður alveg til í það að við hefðum haldið hreinu. Ég sé það samt að það er farið að skipta menn meira máli að við erum að fá á okkur mörk. Það er farið að nísta aðeins meira í hjartað að fá á okkur mörk í lokin. Ég vona að það styttist í að menn haldi einbeitingu í 90 mínútur."

Óskar Hrafn segir að það væri frekja að biðja um eitthvað meira.

„Þeir lentu að einhverju leiti í okkur í gír og þeir geta horft á fullt af hlutum sem þeir geta gert betur eins og við. Þetta riðlast aðeins við skiptinguna sem er stundum smá áhyggjuefni hjá okkur , þá hverfur takturinn. Við förum til Eyja og vinnum 6-2, það hljóta allir að vera sáttir með það, annað væri frekja. Það er ekki eins og við löbbum hérna um og höldum að við eigum einhvern rétt á því að valta yfir Eyjamenn. Þetta er jöfn deild og að mörgu leiti er það dagsformið sem skilur liðin að."

Viðtalið við Óskar Hrafn má sjá í heild sinni hér að ofan.
Slapp
banner
banner
banner