Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
Adam Ægir: Var bara kominn tími á að borga til baka
Elías Már: Ætla rétt að vona það
„Kemur að leiknum sem við fáum á okkur minna en tvö mörk“
Sölvi hefur engar áhyggjur af sektum vegna blysa - „Voru einhverjir Blikar í Kópavoginum“
Samúel Kári: Á endanum verður maður líka að hugsa um sjálfan sig
Hemmi hæstánægður með stórsigurinn „Það mega allir halda áfram að blaðra og bulla"
Óskar búinn að æfa skallana - „Þeir eiga ekkert að gleyma mér“
Fyrsta markið fyrir Þór var sérstakt - „Hef skorað mörk hægri vinstri í Noregi"
Siggi Höskulds eftir stóran dag: Ein flottasta varsla sem ég hef séð
Hundóánægður með hugarfar Eyjamanna - „Margir höfðu ekki áhuga á að verjast“
Þurfa að endurmeta undirbúninginn - „Getum ekki boðið fólki upp á þetta"
Aron Sig: Þá er þetta dautt
Óskar Hrafn: Vona að það styttist í að menn haldi einbeitingu í 90 mínútur
Haraldur Freyr um völlinn: Hefur bara hellings áhrif
Stefan Ljubicic: Bara teipað og tvær til þrjár verkjatöflur
Óli ekki með miklar áhyggjur af bitleysi Blika - „Eigum eftir að laga þetta“
Stubbur: Jú jú, það var eitthvað að gera
Haddi: Fer ánægður með stigið norður
Lárus Orri: Hann hlýtur að vera í liði umferðarinnar
Davíð Smári: Gaman að byrja þetta með alvöru hvelli
   fim 23. apríl 2026 22:07
Haraldur Örn Haraldsson
Samúel Kári: Á endanum verður maður líka að hugsa um sjálfan sig
Mynd: Valur

„Geðveikt á fá sigur, sigurinn nærir og bara frábært að vera kominn," sagði Samúel Kári Friðjónsson nýjasti leikmaður Vals eftir 3-0 sigur gegn FH í kvöld.


Lestu um leikinn: Valur 3 -  0 FH

Samúel byrjaði á bekknum og kom inn á í seinni þegar staðan var þegar 3-0. Hann segist spenntur fyrir því að koma inn í svona sterkt lið.

„Eins og sást, þá byrjum við af krafti frá fyrstu mínútu, skorum þrjú mörk og nýttum okkur það sem var opið. Svo var það bara númer eitt, tvö og þrjú að halda hreinu í 90 mínútur. Það nærir líka hvað mest," sagði Samúel.

Ýmsar sögusagnir hafa verið í kringum félagaskipti Samúels, en eitt af þeim er að hann hafi verið ósáttur í Stjörnunni, og þá sérstaklega við að vera spilaður út úr stöðu.

„Eina sem ég get sagt er að ég er kominn í Val og stundum er það bara þannig að menn eru mis sammála með hluti. Þegar öllu er á botninn er hvolft verður maður líka að hugsa um sjálfan sig, allt er í góðu og allir sáttir með þessa niðurstöðu. Sérstaklega ég," sagði Samúel.


Slapp
banner
banner
banner