ÍBV tapaði illa gegn KR í Bestu deildinni í dag. Fótbolti.net ræddi við Óskar Elías Zoega Óskarsson sem stýrði liðinu í dag þar sem Aleksandar Linta tók út leikbann.
Lestu um leikinn: ÍBV 2 - 6 KR
„Þetta er agalegt, við vorum á eftir á öllum sviðum leiksins í dag. Það var meiri orka í þeim í byrjun, fáum á okkur mark, Marcel ver boltann út í teiginn, skotið frá Krumma og svo aukaspyrnan eftir það. Þá fer leikurinn í algjört kaos. Við fórum að taka áhættur, vorum seinir og menn fóru að bíða eftir skyndisóknum og þá opnaðist glufur þegar þeir unnu boltann. Þetta var agalegur dagur í dag hjá okkur."
„Við þurfum að endurmeta undirbúninginn hjá okkur. Leikmenn reyna sitt besta, við þurfum aðeins að endurmeta það og gera betur, við getum ekki boðið fólki upp á þetta."
„Við töldum þetta vera besta uppleggið fyrir þennan leik. Við ætluðum að fara maður á mann á miðjunni og stíga upp en eins og allir vita er mikil hreyfing á KR-ingum, við eltum þá aðeins of mikið út um allt."
























