Arsenal er mjög vongott um að landa tveimur stjörnum fyrir næstu leiktíð en það eru þær Georgia Stanway og Ona Batlle. Þetta kemur fram á Sky Sports.
Félagið var að framlengja við sænska framherjann Stina Blackstenius á dögunum og ætlar að halda áfram að reyna framlengja við nokkra lykilmenn.
Auk þess ætlar félagið að styrkja hópinn en Sky segir að það sé að ganga frá samningum við ensku landsliðskonuna Stanway og spænsku landsliðkonuna Batlle.
Stanway er 27 ára gömul og spilar á miðjunni, en hún hefur verið að gera það gott með Bayern München í Þýskalandi. Hún verður samningslaus í sumar og eru góðar líkur á því að hún gangi í raðir Arsenal.
Batlle er 26 ára gömul og spilar stöðu hægri bakvarðar, en hún hefur verið á mála hjá stórliði Barcelona síðustu þrjú ár. Hún varð heimsmeistari með Spánverjum árið 2022 og var áður á mála hjá Manchester United.
Arsenal ætlar sér stóra hluti á komandi árum og eru þessi félagaskipti yfirlýsing um það. Arsenal varð Evrópumeistari á síðasta ári.
Liðið er í 3. sæti í WSL-deildinni með 38 stig og á tvo leiki til góða. Möguleikinn á að vinna deildina er enn til staðar, en til þess þarf liðið að vinna rest og vonast til að Man City misstigi sig í síðustu umferðunum.



