Lamine Yamal verður ekki meira með Barcelona á keppnistímabilinu og vonast til að ná heimsmeistaramótinu með Spáni í sumar.
23.04.2026 12:35
Yamal frá út tímabilið
Ungstirnið hefur gefið út yfirlýsingu þar sem hann lýsir yfir vonbrigðum sínum með að missa af síðustu vikum tímabilsins. Hann hefur þó trú á liðsfélögum sínum og er viss um að næsta tímabil verði enn betra hjá Börsungum, sem eru á góðri leið með að verja Spánarmeistaratitilinn sinn.
„Þessi meiðsli halda mér utan vallar á mikilvægum kafla tímabilsins og þetta særir mig meira en ég orð fá lýst," sagði Yamal í yfirlýsingu í dag.
„Það er sárt að geta ekki barist við hlið liðsfélaganna, að geta ekki hjálpað liðinu þegar það þarf á mér að halda. En ég hef trú á strákunum og ég veit að þeir munu gera sitt besta í hverjum einasta leik.
„Ég mun hvetja þá áfram frá hliðarlínunni. Þetta er ekki endirinn á neinu, þetta er bara smá pása. Ég mun snúa aftur sterkari og hungraðari en áður og næsta tímabil verður betra."
Barcelona er með níu stiga forystu á toppi spænsku deildarinnar þegar sex umferðir eru eftir.




