Jason Daði Svanþórsson yfirgaf Grimsby Town á dögunum eftir tveggja ára veru hjá enska félaginu. Jason er 26 ára gamall kantmaður sem fór til Grimsby frá Breiðabliki fyrir um tveimur árum.
Fótbolti.net ræddi við Jason um tímann hjá Grimsby og glæstan bikarsigur liðsins á Manchester United í vetur.
Fótbolti.net ræddi við Jason um tímann hjá Grimsby og glæstan bikarsigur liðsins á Manchester United í vetur.
Slógu Man Utd úr bikarnum
Það voru vægast sagt óvænt úrslit í vetur þegar Grimsby tókst að slá Manchester United út úr deildarbikarnum. Leiknum lauk með 2-2 jafntefli en Grimsby hafði betur í vítaspyrnukeppni.
Jason var ekki með í leiknum vegna meiðsla en hann segir upplifunina hafa verið skemmtilega.
„Auðvitað var það smá svekkjandi að missa af svona leik en maður var líka bara gríðarlega stoltur af liðinu. Stemningin eftir sigurinn var ótrúleg og stuðningsmennirnir algjörlega geggjaðir. Maður sá hvað liðið er ótrúlega stór hluti af lífi allra í bænum og hvað úrslitin gerðu mikið fyrir fólkið. Þetta er eitthvað sem er erfitt að lýsa en gaman að upplifa,“ segir Jason.
Kúltúr sem maður dreymir um
Hvernig finnst þér að spila í Englandi, myndirðu mæla með þessu skrefi?
„Já, ég myndi klárlega mæla með því þar sem þetta er skemmtilegt umhverfi til að spila í og kúltúr sem mann dreymir um að upplifa. Að búa og spila fótbolta á Englandi var alltaf markmið og ég er þakklátur fyrir þennan tíma. Stuðningsmennirnir eru ótrúlega góðir og maður finnur bara hvað hver leikur skiptir þá miklu máli.“
Mikill munur
Jason var spurður um hvort að það sé mikill munur á Bestu deildinni og League 2.
„Deildirnar eru mjög öðruvísi. Hver einasti leikur á Englandi er virkilega krefjandi og allir mótherjar gefa þér leik. Það eru margir leikmenn úr stærri deildum á Englandi svo það eru góðir leikmenn þarna.“
„Þú spilar á völlum í misgóðu ástandi í gegnum árið, ekkert gervigras og því eru liðin oft beinskeyttari en heima svo það er klárlega munur á deildunum. League Two er líkamlegri á meðan hérna heima er meiri áhersla á tæknilega þáttinn.“
Góðir vinir í Grimsby
Hvernig gerir þú tímann upp í Grimsby, hvað stendur upp úr?
„Fyrra tímabilið stendur klárlega upp úr, þar sem við vorum einum sigri frá því að komast í playoff sæti. Mér leið mjög vel og náði að hjálpa liðinu í þeirri baráttu.“
„Aftur á móti voru mikil vonbrigði að ná ekki að spila meira á þessu tímabili vegna meiðsla. Á sama tíma lærði ég ótrúlega margt. Heilt yfir leið mér og kærustunni mjög vel allan tímann, fólkið var yndislegt og við eignuðumst góða vini,“ segir Jason að lokum.


