Hansi Flick þjálfari Barcelona hefur tjáð sig um risafregnirnar varðandi Pep Guardiola. Hann er að hætta í starfi sínu sem aðalþjálfari Manchester City eftir heilan áratug.
Guardiola vann ógrynni titla við stjórnvölinn hjá Man City en fyrir það náði hann frábærum árangri með Barcelona og FC Bayern.
23.05.2026 07:30
Enrique: Guardiola er besti stjóri sögunnar
„Pep er besti þjálfari fótboltaheimsins, hann hefur sannað það ár eftir ár. Meira að segja þegar á móti blæs þá virðist hann alltaf vera tilbúinn að höndla aðstæður á sem bestan máta. Hann hefur unnið magnað starf á síðustu tíu árum en líka fyrir þann tíma," sagði Flick meðal annars.
„Hann er með magnaða fótboltaheimspeki og nær að koma hugmyndum sínum ótrúlega vel til skila. Liðin hans spila alltaf á hæsta mögulega gæðastigi og hann finnur alltaf lausnir til að vera aðeins betri heldur en samkeppnin.
„Hann hefur unnið ótrúlegt magn titla og ég er mjög þakklátur fyrir að þekkja hann persónulega útaf því að hann er virkilega mögnuð manneskja.
„Ég vona að hann hvíli sig vel og taki sér sinn tíma áður en hann snýr aftur í þjálfun. Hann er nógu ungur til að snúa aftur og halda áfram að bæta met."
Flick var svo spurður hvort hann búist við að vera jafn lengi hjá Barcelona og Pep var hjá City.
„Ég held ekki að ég verði ennþá við stjórnvölinn hérna þegar ég á sjötugsafmæli," svaraði Flick og glotti.
Flick hefur unnið Spánarmeistaratitilinn tvö ár í röð við stjórnvölinn hjá Barca og gerði nýjan samning á dögunum sem gildir næstu tvö árin. Flick er 61 árs gamall og þjálfaði Hoffenheim, FC Bayern og þýska landsliðið áður en hann var ráðinn til Barcelona.
18.05.2026 14:22
Flick framlengir við Barcelona (Staðfest)



