Chelsea og Arsenal vilja Kroupi - Man Utd bjartsýnt á að landa Ederson og Tonali - Inter hefur áhuga á Kepa
   lau 23. maí 2026 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Enrique: Guardiola er besti stjóri sögunnar
Mynd: EPA
Luis Enrique, stjóri PSG, trúir því ekki að Pep Guardiola muni hætta með Man City eftir tímabilið.

Enrique og Guardiola hafa mæst margoft sem þjálfarar og þá spiluðu þeir saman hjá Barcelona á sínum tíma. Enrique segir að Guardiola sé besti stjóri sögunnar.

„Ég trúi þessu ekki og vil ekki trúa þessu því ég vil að hann verði áfram í mörg ár. Hann spurði mig oft þegar ég var með (spænska) landsliðið hvernig það væri. Ég held að hann muni ekki þjálfa ítalska landsliðið en það er ekki hægt að útiloka það," sagði Enrique.

„Fyrir mér er hann besti stjóri sögunnar. Ekki bara út af titlunum, hverjum er ekki sama hversu marga titla menn vinna? Það er út af því hvernig hann hefur breytt leiknum, hvernig hann dirfist til að færa miðverðina eða bakverðina á miðjuna. Hann mun setja miðverðina fremst einn daginn og allir munu herma eftir honum. Fáir hafa þann eiginleika, aðeins þeir útvöldu."
Slapp
banner