Kane orðaður við Barcelona - Greenwood til Roma? - Ederson á leið til Man Utd
   lau 23. maí 2026 21:57
Ívan Guðjón Baldursson
Vill taka Sunderland til fyrirmyndar: Þurfum nýja leikmenn
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Sergej Jakirovic svaraði spurningum eftir dramatískan sigur Hull City í úrslitaleik umspils Championship deildarinnar.

Jakirovic gerði magnaða hluti við stjórnvölinn hjá Hull og kom liðinu upp í ensku úrvalsdeildina eftir níu ára fjarveru. Liðið endaði í sjötta sæti Championship deildarinnar og lagði Millwall að velli í undanúrslitum umspilsins. Oliver McBurnie skoraði svo eina mark leiksins í úrslitaleiknum gegn Middlesbrough á 95. mínútu til að tryggja gríðarlega verðmætt sæti í úrvalsdeildinni.

„Við þurfum að styrkja liðið umtalsvert en ég held að aðal leikmennirnir sem hjálpuðu okkur upp um deild geti verið áfram, þeir geta hjálpað okkur í úrvalsdeildinni. Við verðum að kaupa betri leikmenn. Mér þykir Sunderland-uppskriftin vera frábær, þeir keyptu dýnamíska leikmenn sem búa yfir miklum hraða. Við getum líka reynt að byggja svona lið," sagði Jakirovic.

„Félagið fær mikinn pening við að komast upp um deild og ég er viss um að eigendurnir munu fjárfesta honum gáfulega. Það er mikilvægt að taka rétt skref á þessum tímapunkti."

Jakirovic er gríðarlega ánægður með árangurinn sem náðist á tímabilinu.

„Tilfinningin að vinna úrslitaleikinn er ótrúleg, ég get varla trúað þessu. Ég hef þjálfað í Tyrklandi, Króatíu, Bosníu og þetta er öðruvísi hérna. Það er svo mikil ákefð og brjálað leikjaálag."

Jakirovic hrósaði Oli McBurnie einnig í hástert og var McBurnie mjög hlýr í garð stjóra sins í sínu viðtali að leikslokum.

Jakirovic er 49 ára fyrrum landsliðsmaður Bosníu. Hann þjálfaði Dinamo Zagreb og Kayserispor áður en hann var ráðinn til Hull.

   23.05.2026 20:01
„Í fyrsta sinn á ævinni sem ég verð orðlaus"

Slapp
banner