23.06.16 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ariel Borysiuk til QPR (Staðfest)

Borysiuk er búinn að semja við QPR

Mynd: Getty Images

Borysiuk er búinn að semja við QPR

Mynd: Getty Images
QPR er búið að kaupa pólska miðjumanninn Ariel Borysiuk frá Leiga Warsaw í Póllandi.
Hann er fyrsti leikmaðurinn sem QPR kaupir fyrir komandi tímabil, en hann á þó eftir að gangast undir læknisskoðun. Hann mun gangast undir hana í Lundúnum í næstu viku.
Leiga Warsaw greindi frá félagsskiptunum á vefsíðu sinni og þökkuðu í leiðinni leikmanninum fyrir góða þjónustu.
„Ariel - gangi þér vel hjá nýja félagi þínu. Þakka þér fyrir frábært viðhorf, bæði innan sem utan vallar,\" sagði í yfirlýsingu frá pólska félaginu.
Borysiuk er pólskur landsliðsmaður og á að baki 10 landsleiki. Hann er þó ekki í pólska landsliðshópnum sem er nú á EM í Frakklandi.