„Hvar skal byrja?! Kannski er best að byrja á því að biðja ykkur fyrirgefningar á að ná ekki að fara áfram. Við vildum svo mikið skrifa okkur frekar á spjöld sögunnar en við náðum því ekki alveg og það er sárt," skrifar Andy Robertson, fyrirliði skoska landsliðsins, á Twitter í dag.
Skotland féll úr leik á EM í gær eftir tap gegn Króatíu. Leikurinn var úrslitaleikur hvort liðið færi áfram.
Skotland féll úr leik á EM í gær eftir tap gegn Króatíu. Leikurinn var úrslitaleikur hvort liðið færi áfram.
„Við viljum meira, við viljum komast í fleiri keppnir og við viljum gera fólkið frá þessu stórkostlega landi enn stoltari af okkur!"
„Við munum gera allt til að gera ná því markmiði. Skotland, þetta hefur verið sönn ánægja," skrifaði Robertson . Þráðin má nálgast hér að neðan.
Where to even start?! I suppose the first thing to do is to say that we are sorry for falling short in the end. We desperately wanted to make even more history but we didn’t quite get there and it hurts. pic.twitter.com/Oh9N1FyHuU
— Andy Robertson (@andrewrobertso5) June 23, 2021
Athugasemdir