Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 23. júní 2022 15:03
Elvar Geir Magnússon
ESPN: Barcelona búið að gera fyrsta tilboð í Lewandowski
Mynd: Getty Images
Samkvæmt heimildum ESPN hefur Barcelona gert formlegt tilboð í pólska sóknarmanninn Robert Lewandowski hjá Bayern München.

Bayern vill fá meira en 40 milljónir evra fyrir Lewandowski sem hefur lýst því yfir að hann vilji yfirgefa félagið.

Sagt er að fyrsta tilboð Barcelona hafi ekki verið það hátt.

Lewandowski er 33 ára og verður samningslaus á næsta ári en Bayern hefur gefið það út að vilji félagsins sé að hann verði áfram á næsta tímabili.

Sagt er að samband Barcelona og Bayern hafi orðið stirðara eftir Ofurdeildarhugmyndirnar en þýska félagið var ekki hluti af þeim áætlunum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner