Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   þri 23. júlí 2019 05:56
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ísland í dag - Valur og Breiðablik mæta mótherjum á skriði
Kvenaboltinn
Bætir Berglind Björg við þau 10 mörk sem hún hefur skorað í deildinni í sumar?
Bætir Berglind Björg við þau 10 mörk sem hún hefur skorað í deildinni í sumar?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
11. umferð fer fram í heild sinni í Pepsi Max-deild kvenna.

ÍBV og Keflavík mætast í Eyjum þar sem sigurvegarinn losar aðeins um falldrauginn. Í Árbænum mætir Fylkir liði Þór/KA. Fylkir er í botnsæti deildarinnar á meðan Þór/KA er í 3. sæti, 11 stigum frá toppliðunum.

Toppliðin tvö mæta heitum liðum. Breiðablik mætir Selfoss sem er á þriggja leikja sigurspretti og á sama tíma fær Valur lið KR i heimsókn sem hefur unnið tvo leiki í röð.

Þá mætir HK/Víkingur liði Stjörnunnar í fallbaráttuslag.

þriðjudagur 23. júlí

Pepsi-Max deild kvenna
18:00 ÍBV-Keflavík (Hásteinsvöllur)
18:00 Fylkir-Þór/KA (Würth völlurinn)
19:15 Breiðablik-Selfoss (Kópavogsvöllur)
19:15 HK/Víkingur-Stjarnan (Víkingsvöllur)
19:15 Valur-KR (Origo völlurinn)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir