Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 23. júlí 2021 10:38
Elvar Geir Magnússon
Hvern gæti Man Utd keypt í stað Pogba?
Mynd: Getty Images
Enskir fjölmiðlar greina frá því að Paul Pogba hafi hafnað tilboði Manchester United um nýjan samning.

Pogba, sem er meðal annars orðaður við PSG, verður samningslaus á næsta ári og United þyrfti því að selja hann í sumar til að forðast það að missa hann á frjálsri sölu.

United þarf að finna leikmann í stað Pogba ef hann hverfur á braut. Ole Gunnar Solskjær vill vera með leikmannahóp sem er tilbúinn að berjast um enska meistaratitilinn.

Mögulegt er að United fái inn varnarsinnaðan miðjumann eða sóknarþenkjandi og Mirror hefur birt lista yfir átta leikmenn sem íþróttafréttamenn blaðsins telja að séu raunhæf skotmörk fyrir Rauðu djöflana.
Athugasemdir
banner
banner