Markvörðurinn efnilegi Jökull Andrésson er farinn á láni til Morecambe fyrir næstu leiktíð.
Hann er búinn að skrifa undir samning út tímabilið við Morecambe sem var að komast upp í C-deildina á Englandi.
Jökull var á láni hjá bæði Exeter og Morecambe á síðustu leiktíð, en mest af hjá Exeter þar sem hann vakti athygli fyrir góða frammistöðu.
Þetta er spennandi skref fyrir Jökul sem er einn af okkar efnilegustu markvörðum.
Áður en hann gekk frá samningum við Morecambe, þá skrifaði hann undir nýjan samning við Reading, sem er í B-deild á Englandi. Nýr samningur hans við Reading gildir til 2024.
Athugasemdir