Fotbolti.net
23.07.21 - 11:12
Elvar Geir Magnússon

Tottenham neitar fréttum af Kane - City ekki tilbúið að borga þessa upphæð

Tottenham neitar fréttum af Kane - City ekki tilbúið að borga þessa upphæð
Canon

Mynd: EPA

Íþróttafréttamaðurinn Fabrizio Romano segir að Tottenham hafi hafnað þeim fréttaflutningi <i>The Sun</i> að verið sé að ganga frá kaupum Manchester City á Harry Kane.

Hann segir að stjórnarformaðurinn Daniel Levy vilji halda enska sóknarmanninum og ekkert samkomulag sé milli Tottenham og City.

City hafi gert 100 milljóna punda tilboð fyrir mánuði síðan en Tottenham hafi hafnað því. Ekkert tilboð hafi komið síðan.

Samkvæmt heimildum <i>TalkSport</i> er Manchester City ekki tilbúið að borga 160 milljónir punda fyrir Kane en það er upphæðin sem <i>The Sun</i> nefndi.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.