Fotbolti.net
23.07.26 - 11:05
Kári Snorrason

Vilja fá vonarstjörnu Bosníu í stað Garnacho

Fæddur árið 2007.

Fæddur árið 2007.

Canon

Mynd: EPA

Chelsea hefur áhuga á að fá hinn 18 ára gamla Bosníumann Kerim Alajbegovic í sínar raðir.

Samkvæmt The Telegraph vill félagið sækja Bosníumanninn í stað Alejandro Garnacho sem er á förum frá félaginu.

Alajbegovic er léttleikandi kantmaður sem lék með Salzburg á síðustu leiktíð, hann skoraði 13 mörk og lagði upp fjögur í öllum keppnum á síðasta ári.
Maður dagsins á HM - Trúrækni táningurinn sýndi töfra
TENGT EFNI

Maður dagsins á HM - Trúrækni táningurinn sýndi töfra

Hann sneri aftur til Bayer Leverkusen, þar sem hann fór upp í gegnum akademíuna, í sumar eftir að þýska félagið virkjaði endurkaupsákvæði í samningi hans hjá Salzburg.

Chelsea er ekki eina liðið á eftir þessum efnilega leikmanni en ítalska stórliðið Juventus er sömuleiðis á eftir táningnum.

Þrátt fyrir ungan aldur er hann lykilmaður í landsliði Bosníu og Hersegóvínu. Eflaust muna einhverjir eftir glæsilegu marki Alajbegovic á HM fyrr í sumar sem hann skoraði gegn Katar í 3-1 sigri Bosníumanna.
Skoraði glæsilegt mark á HM.

Skoraði glæsilegt mark á HM.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.