23.08.15 - 12:40
Arnar Geir Halldórsson
Eduardo Vargas til Hoffenheim (Staðfest)

Vargas mun reyna sig í þýska boltanum

Mynd: Getty Images

Vargas mun reyna sig í þýska boltanum

Mynd: Getty Images

Þýska úrvalsdeildarliðið Hoffenheim hefur gengið frá kaupum á Eduardo Vargas frá Napoli.
Hoffenheim greiðir 5 milljónir evra fyrir þennan sóknarmann frá Síle og er honum væntanlega ætlað að fylla skarð Roberto Firmino sem gekk til liðs við Liverpool í sumar.
Napoli borgaði á sínum tíma 11,5 milljónir punda fyrir Vargas en hann náði sér aldrei á strik í ítalska boltanum og var lánaður til Gremio, Valencia og QPR á þeim fjórum árum sem hann var í eigu Napoli.
Vargas sýndi fína spretti í slöku liði QPR í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og var orðaður við nokkur ensk lið í sumar.
Þessi 25 ára gamli leikmaður hefur skorað 22 mörk í 48 landsleikjum fyrir Síle og var í stóru hlutverki þegar Síle vann Suður Ameríkubikarinn fyrr í sumar.