fös 23. ágúst 2019 14:30
Elvar Geir Magnússon
Kwame Quee fer til Afríku í landsliðsverkefni
Kwame Quee.
Kwame Quee.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kwame Quee hefur verið valinn í landsliðshóp Síerra Leóne sem leikur umspilsleiki við Líberíu í komandi landsleikjahléi í september.

Fyrri leikurinn fer fram í Líberíu 4. september en sá síðari í Freetown í Síerra Leóne fjórum dögum síðar.

Kwame leikur með Víkingi Reykjavík á lánssamningi frá Breiðabliki en hann á fjórtán landsleiki að baki fyrir Síerra Leóne.

Vísir.is greinir frá þessu.

Kwame verður ekki eini leikmaður Víkings sem verður upptekinn í landsliðsverkefni en Kári Árnason verður væntanlega valinn í íslenska landsliðið sem mætir Moldavíu og Albaníu.
Athugasemdir
banner
banner